Samstæðuárshlutareikningur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu, og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga.
Samstæðuárshlutareikningur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2022 var staðfestur af stjórn félagsins í dag 30. ágúst 2022.
Rekstrartekjur samstæðunnar á tímabilinu námu 50,4 milljónum evra. Hagnaður samkvæmt rekstrarreikningi samstæðunnar nam 21,5 milljónum evra á tímabilinu.
Eignir samstæðunnar í lok tímabilsins samkvæmt efnahagsreikningi námu 517,8 milljónum evra og skuldir námu 261,2 milljónum evra. Bókfært eigið fé samstæðunnar nam 256,5 milljónum evra og var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 49,6% í lok tímabilsins.
Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4227.
Samstæðuárshlutareikningur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. 1. janúar – 30. júní 2022