Samstæðuárshlutareikningur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023 var staðfestur af stjórn félagsins í dag 29. ágúst 2023.
Rekstrartekjur samstæðunnar á tímabilinu námu 44,9 milljónum evra. Hagnaður samkvæmt rekstrarreikningi samstæðunnar nam 6,4 milljónum evra á tímabilinu.
Eignir samstæðunnar í lok tímabilsins samkvæmt efnahagsreikningi námu 465,9 milljónum evra og skuldir námu 186,7 milljónum evra. Bókfært eigið fé samstæðunnar nam 279,2 milljónum evra og var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 59,9% í lok tímabilsins.
Samstæðuárshlutareikningur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu, og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga.
Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4200.
Samstæðuárshlutareikningur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. 1. janúar – 30. júní 2023