Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum

22 November 2024

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 520 m.kr. í þriggja mánaða víxilinn með 9,00% vöxtum, sem samsvarar 0,24% álagi á 3M Reibor og 840 milljónum í sex mánaða víxilinn á 9,13% vöxtum sem samsvarar 0,35% álagi á 6M Reibor eða samtals 1.360 milljónum. Á gjalddaga, þann 2. desember næstkomandi, eru víxlar að nafnvirði 1.180 milljónir króna.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 2. desember 2024.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR:

„Við hjá ÚR erum sem fyrr þakklát fyrir traustið sem fjárfestar sýna félaginu. Það er ljóst að innlendur fjármálamarkaður hefur trú á fyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi.”

Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is